Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Landssambandi hestamannfélaga, Félagi hrossabænda og Félagi Tamningamanna:

“Fyrir nokkru voru settar fram hugmyndir á Alþingi um að leyfa flutning á hundum til og frá Íslandi án þess að þeir þyrftu í einangrun en núverandi lög kveða á um einangrun til þess að fyrirbyggja smithættu á mjög alvarlegum sjúkdómum hingað til lands.
Af þessu tilefni vilja eftirtalin hagsmunarsamtök í hestamennsku mótmæla harðlega fram komnum hugmyndum þar sem þær geta haft óafturkræfar afleiðingar fyrir íslenska hrossastofninn og ófyrirséðan kostnað fyrir alla hesta- og hundeigendur í landinu.
Hestamenn fengu smjörþefinn af því á síðasta ári hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef ekki er varlega farið í þessum efnum og þeim reglum fylgt sem í gildi eru í hvívetna. Því leggja hagsmunarsamtök í hestamennsku áherslu á að ekki verði neinar breytingar gerðar á því fyrirkomulagi sem í gildi eru um sóttvarnir nema með fullu samþykki færustu sérfræðinga á þessu sviði og í fullri sátt við alla hagsmunaraðila.

Landssamband hestamannafélaga
Félag hrossabænda
Félag tamningarmanna

 

Gripið til varúðarráðstafana.

Með tilkynningu sem hagsmunasamtök í hestamennsku sendu frá sér í dag fylgdi yfirlýsing frá embætti yfirdýralæknis þar sem tilkynnt er um sérstakar varúðarráðstafanir varðandi innflutning á hundum í framhaldi af fréttum af veiru í hundum sem hugsanlega getur borist í hesta.

Þar kemur fram að fréttir hafi borist frá Bandaríkjunum um breytingu á veiru sem veldur inflúensu hjá hestum, A/equine 2 (H3N8), þannig að hún sýkir nú einnig hunda og er veiran orðin nokkuð útbreidd meðal hunda í Bandaríkjunum. Er ályktun embættisins sú að veiran geti borist í hross, þótt það hafi ekki verið sannað.

Með þeirri ályktun er embættið að benda á þá hættu fyrir íslenska hrossastofninn sem fylgt gæti innflutningi á hundum frá Bandaríkjunum, ef ekki er gætt nægilegrar varkárni. Ef veiran berst úr hundum í hross hérlendis má búast við að það geti leitt til faraldurs með ófyrirsjánlegum afleiðingum.
“Yfirdýralæknir hefur því ákveðið að grípa til sérstakra varúðarráðstafana varðandi innflutning á hundum. Fyrirkomulagi einangrunar verður breytt og sjúkdómavarnir efldar. Blóðsýni til mótefnarannsókna verða tekin tvisvar úr öllum hundum á meðan á einangrun stendur og komi fram vísbendingar um að hundar séu smitaðir af hestainflúensu verður gripið til sérstakra aðgerða,” segir í tilkynningu frá yfirdýralækni.